Landssýning Kynbótahrossa 2020

Ákveðið hefur verið að blása til landssýningar á kynbótahrossum laugardaginn 27. júní á Gaddstaðaflötum við Hellu. Þar verða 10 efstu hross landsins, eftir dóma vorsins, ítarlega kynnt og verðlaunuð, í öllum flokkum hryssna og stóðhesta. Einnig verður um afkvæmasýningar að ræða en þeir stóðhestar sem eiga rétt á fyrstu- og heiðursverðlaunum fyrir afkvæmi geta komið þarna fram og verða verðlaunaðir.